Ókeypis í sund fyrir börn

mbl.is/Ásdís

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að frá og með laugardeginum 19. júní - 31. ágúst næstkomandi yrði ókeypis í sund fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.

Jón Gnarr, borgarstjóri, segir í tilkynningu að þessi ákvörðun sé í samræmi við samstarfsyfirlýsingu Besta flokksins og Samfylkingarinnar en þar sé þetta á lista yfir fyrstu verk nýs meirihluta. „Blautur borgari er glaður borgari, ” er haft eftir Jón Gnarr.

Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur rekur sjö sundlaugar, Árbæjarlaug, Breiðholtslaug, Grafarvogslaug, Kjalarneslaug, Laugardalslaug, Sundhöll Reykjavíkur og Vesturbæjarlaug. Ungmenni á öllum aldri ættu því að geta notið þess að fara frítt í sund í sundlaug sem næst sínu hverfi.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert