Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur slökkt eld sem kviknaði við Smiðjuveg í Kópavogi. Svo virðist sem eldurinn hafi kviknað í bifreið sem var inn á bílaverkstæði við götuna. Mikinn reyk lagði frá verkstæðinu.
Slökkviliðið sprautar nú froðu á bifreiðina en ekki er vitað um slys á fólki.
Að sögn slökkviliðsins urðu töluverðar skemmdir á verkstæðinu.