SPRON og Frjálsi fjárfestingarbankinn hafa ákveðið að bjóða lántakendum með gengistryggð lán að framlengja það úrræði. Þeir greiði 5.500 kr. fyrir hverja upphaflegu milljón lánsins og halda þannig lánum sínum í skilum miðað við upphaflega fjárhæð lánsins.
Þetta kemur fram í tilkynningum frá slitastjórn SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans, sem eru nær samhljóða.