Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú
héldu í gærmorgun til Stokkhólms þar sem þau munu
taka þátt í hátíðarhöldum vegna brúðkaups Viktoríu krónprinsessu og
Daniels Westling. Karl Gústaf Svíakonungur og Silvía drottning buðu
forsetahjónunum að sækja brúðkaupið.
Í gærkvöldi sátu forsetahjónin og aðrir gestir kvöldverð sænsku
ríkisstjórnarinnar en í kjölfar hans er boðið til hátíðartónleika í
Tónlistarhúsi Stokkhólmsborgar.
Vígsluathöfnin verður í dag í og eftir hana er
boðið til hátíðarkvöldverður í sænsku konungshöllinni.