Skaftárhlaup hafið

Skaftárhlaup er hafið. Myndin er úr myndsafni.
Skaftárhlaup er hafið. Myndin er úr myndsafni. mbl.is/ÞÖK

Vatnamælingamenn Veðurstofu Íslands segja að hlaup sé að hefjast í Skaftá. Ekki er vitað á þessari stundu um stærð þess eða frá hvorum katlinum í Vatnajökli það kemur. Haft hefur verið samband við íbúa í Skaftárdal en flætt getur yfir veginn þangað. Engin hætta er talin vera á ferðum.

Vatn er farið að hækka við Sveinstind og búast má við að hlaupsins verði vart við fjallaskálann Hólaskjól á Nyrðra-Fjallabaki um kl. 16 og að það verði komið fram við bæinn Skaftárdal um kl. 18.30.  

Nokkru seinna verður flóðið komið að Kirkjubæjarklaustri.  

Haft hefur verið samband íbúa í Skaftárdal en flætt getur yfir veginn þangað.  Ekki er talin hætta á ferðum, lögregla fylgist grannt með málinu í samvinnu við Veðurstofu Íslands.  Ferðamenn á Nyrðra-Fjallabaki eru beðnir að hafa vara á sér.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert