Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir áhrifin af dómi hæstaréttar á efnahagskerfið vegna gengislána ráðast af því hvernig málið vinnst. Hann segir þó enga bráðahættu á ferðum, innstæður séu enn tryggðar og unnið sé að efnahagslegum stöðugleika.