Landsamband smábátaútgerða segir það vekja undrun að viðskipti með ýsukvóta úr aflamarkskerfinu til krókabáta skuli ekki vera virkari en hann er.
„Ekki síst þegar aðeins má færa 10% (var 33% í fyrra) af úthlutuðum heimildum yfir á næsta fiskveiðiár.
Í aflamarkskerfinu á eftir að veiða rúm 15 þús. tonn en heimilt er að færa rúm 4 þús. tonn milli ára. Allt stefnir því í að þúsundir tonna af ýsu nýtist ekki til verðmæta á fiskveiðiárinu," segir á vef samtakanna.
Á þriðjudag var meðalverð á ýsu til leigu, samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu, 153 kr/kg og söluverð á fiskmörkuðum 272 kr/kg. Sama dag fyrir ári var hún leigð á 60 kr/kg og seldist á 233 kr.
Það sem af er fiskveiðiárinu hafa krókabátar leigt 1.881 tonn af ýsu úr aflamarkskerfinu en á sama tíma í fyrra höfðu þeir fært til sín 3.416 tonn.