Hvalskurður er nú í fullum gangi í Hvalfirði en hvalveiðibáturinn Hvalur 8 kom að landi áðan með eina langreyður. Von er á Hvali 9 á eftir með tvær langreyðar til viðbótar.
Flensarar hafa þegar hafið hvalskurðinn af kappi og er talsverður fjöldi fólks mættur til að fylgjast með.