Bann við vinstri beygju frá Bústaðavegi á álagstímum hefur gefist vel, samkvæmt fréttatilkynningu frá Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar. Mjög hefur dregið úr myndun raða við gatnamótin en ástandið var verst síðdegis og mynduðust oft langar biðraðir við gatnamótin.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hafa biðraðir ekki verið teljandi frá því stillingum var breytt. Bannið gildir ekki um helgar og frídaga. Nánari upplýsingar um hvenær bannið gildir er að finna hér.