Iceland Express ætlar að fljúga vikulega til Orlando á Flórída í október í haust. Flogið verður á laugardögum og verður fyrsta flugið því 2. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Þetta er stórt skref í því að stækka leiðakerfið okkar í Bandaríkjunum, sem hefur fengið afar góð viðbrögð,“ er haft Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, í tilkynningu.