Borgin veiti sumarstyrk til fátækra skjólstæðinga

Þorleifur Gunnlaugsson.
Þorleifur Gunnlaugsson.

Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG í velferðarráði Reykjavíkur, hefur óskað eftir aukafundi í ráðinu sem fyrst, í ljósi þess að hjálparstofnanir hafi lokað fyrir matargjafir í sumar.

Fram kemur í tilkynningu að hann hafi jafnframt óskað eftir upplýsingum um hvað það hafi kostað borgina að veita 15.000 kr. sumarbónus til hvers einstaklings sem þiggi fjárhagsaðstoð og 5000 kr. vegna barns.

Þorleifur hyggst leggja til að veittur verði sumarstyrkur til fátækra skjólstæðinga velferðasviðs á aukafundi ráðsins verði formaður þess við ósk hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert