Í lok júní síðastliðins höfðu 127 fasteignir verið seldar nauðunarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík frá ársbyrjun, þar af 63 í júní. Fyrstu sex mánuði síðasta árs voru 118 eignir seldar nauðungarsölu en allt árið í fyrra voru 207 fasteignir seldar nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík.
Athygli vekur að af þeim nauðungarsölum sem fram fóru fyrstu sex mánuði ársins 2010 hjá sýslumanninum í Reykjavík var nærri helmingurinn í júnímánuði eða 63 nauðungarsölur af 127 alls.
Fyrstu sex mánuði þessa árs voru skráðar nauðungarsölubeiðnir vegna fasteigna 968 talsins. Skráðar nauðungarsölubeiðnir vegna fasteigna í fyrra urðu alls 2.504.