Meintur utanvegaakstur þáttagerðarmanna hinna bresku Top-gear-sjónvarpsþátta er enn í rannsókn hjá lögreglunni á Hvolsvelli.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sagði í fjölmiðlum að hún vonaðist til að málið yrði rannsakað enda væri utanvegaakstur óheimill. Umhverfisstofnun fór fram á það við lögregluna á Hvollsvelli að hún rannsakaði málið og er það enn í rannsókn að sögn hlutaðeigandi aðila.