Þrír voru teknir við meintan ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli í nótt. Tveir þeirra voru í Galtalæk og einn að koma þaðan. Lögreglan áætlaði að í Galtalæk séu 3-5 þúsund manns á útihátíð en erfitt er að meta fjölda fólksins í kjarrinu. Talsverð ölvun mun hafa verið á svæðinu í nótt.
Í Hallgeirsey í Landeyjum eru 300 til 500 manns á útihátíð háskólanema. Björgunarsveitarmenn annast gæslu á svæðinu.