Fá undanþágu frá hvíldartímaákvæðum

mbl.is/Júlíus

Yfirstjórn ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, hefur samþykkt undanþágur fyrir Ísland frá nokkrum ákvæðum reglna um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra í farmflutningum. Undanþágurnar gilda tímabundið frá 30. október 2010 til 15. apríl 2011.

Fram kemur í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu, að Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hafi ákveðið að taka málið upp árið 2008 í kjölfar óska frá Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandi Íslands og Starfsgreinasambandi Íslands.

Hafi ráðuneytið óskað eftir því við ESA að Íslandi yrðu veittar undanþágur frá samevrópskum aksturs- og hvíldartímareglum þar sem aðstæður hér á landi væru að mörgu leyti frábrugðnar því sem gerist á meginlandinu. 

Haft er eftir Kristjáni, að undanþágur sem þessar séu án fordæma gagnvart öðrum EES ríkjum og að svo virðist sem að nú sé viðurkennt að á Íslandi séu aðstæður með þeim hætti að réttlætanlegt sé að undanþágur séu gefnar frá aksturs- og hvíldartímareglum.

Samkvæmt reglugerð nr. 561/2006/EB er leyfilegur aksturstími dag hvern 9 klukkustundir en hann má lengja um tvær stundir tvo daga í viku. Fallist er á beiðni Íslands um að aka megi 4 daga vikunnar í stað tveggja daga í 11 klukkustundir á leiðunum milli Reykjavíkur og Egilsstaða, Neskaupstaðar og Ísafjarðar.

Einnig var fallist á beiðni Íslands um að framlengja megi akstur um hálfa klukkustund, úr 4,5 í 5 stundir, milli Reykjavíkur og Freysness í Öræfum og milli Freysness og Egilsstaða. Þær undanþágur sem fengust eru bundnar við flutning ferskvöru.

Ráðuneytið mun nú kanna möguleika á því að fá varanlegar undanþágur áður en ofangreindur frestur rennur út.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert