Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í dag tuttugu ökumenn fyrir of hraðan akstur. Einn þeirra var þar að auki ölvaður. Þá gómaði lögreglan einn ökumann sem hafði verið sviptur ökuréttindum.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur fylgst einkar náið með hraðakstri á Reykjanesbrautinni undanfarna daga.