Siglingastofnun áréttar að öll óviðkomandi umferð sé bönnuð um Landeyjahöfn. Mikil umferð smærri báta hefur verið um höfnina undanfarið og eins hafa margir komið landleiðina að höfninni. Engar siglingar eru heimilar um höfnina fyrr en hún verður formlega opnuð. Banninu verður framfylgt í samráði við lögreglu.
„Fólk á öllum aldri, jafnvel mæður með smábörn og mjög roskið fólk hefur sést
þar klifrandi í grjótgörðunum innan um stórvirkar vinnuvélar. Engar
slysavarnir eru til staðar í höfninni og því skapa óþarfa ferðalög almennings á
þessu vinnusvæði mikla slysahættu,“ segir í tilkynningu Siglingastofnunar.