Ellefu ökumenn voru sektaðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut í gærkvöldi og nótt. Sá sem hraðast ók var á 121 km hraða á klukkustund en hámarkshraði er 90 km.
Þá var einn ökumaður stöðvaður í Reykjanesbæ, grunaður um ölvun við akstur. 17 númeraplötur voru teknar af bílum vegna ógreiddra trygginga.