Fjörug nótt á Egilsstöðum

Ágætis fjör var á Egilsstöðum í nótt en þar hafði lögreglan í ýmsu að snúast við að aðstoða fólk sem var að skemmta sér. Enginn gisti þó fangageymslur en nokkuð var um að lögregla þyrfti að hjálpa fólki sem rataði ekki heim eftir nóttina og mundi jafnvel ekki hvar það hefði átt næturstað. Virðist sem skemmtanagleðin hafi verið meiri en við mátti búast þar sem á Vopnafirði var haldin bæjarhátíð og Eistnaflug á Neskaupstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert