Starfsmenn veitingastaðarins Nítjándu hæðarinnar hafa tekið höndum saman og ætla að bjóða þeim sem hingað til hafa reitt sig á aðstoð Fjölskylduhjálparinnar upp á súpu, brauð og drykkjarföng á mánudögum í júlí á milli klukkan 17 og 19. Fyrsta súpukvöldið er í dag.