Barnaverndaryfirvöld fóru að málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga og stjórnsýslulaga við rannsókn á málefnum Götusmiðjunnar og tóku ákvarðanir sínar með hagsmuni barnanna að leiðarljósi eins og þeim er skylt. Þetta kemur fram í niðurstöðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins sem hefur lokið athugun sinni á meðferð málsins.
Málið varðar rannsókn Barnaverndar Reykjavíkur, barnaverndarnefndar Kópavogs og Barnaverndarstofu, 25. júní síðastliðinn, á aðstæðum barna sem vistuð voru hjá Götusmiðjunni og brottför þeirra þaðan að kvöldi sama dags.
Guðmundur Týr Þórarinsson, forstöðumaður Götusmiðjunnar, beindi erindi til félags- og tryggingamálaráðuneytisins þar sem hann gerði athugasemdir við meðferð málsins og taldi að á sér hefði verið brotið í ýmsum atriðum.
Á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins segir, að niðurstaða ráðuneytisins sé sú, að Barnavernd Reykjavíkur, barnaverndarnefnd Kópavogs og Barnaverndarstofa hafi farið að málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga og stjórnsýslulaga við rannsókn málsins 25. júlí sl.
Þá hafi það mat barnaverndaryfirvalda, að rétt væri að börnin færu frá Götusmiðjunni að kvöldi þess sama dags, verið í samræmi við frumskyldur barnaverndaryfirvalda samkvæmt barnaverndarlögum. Er þá vísað til þeirrar meginreglu 4. gr. laganna um að í barnaverndarstarfi skuli beita þeim ráðstöfunum sem ætla megi að barni séu fyrir bestu en í því felst að börnin skuli ávallt njóta vafans.
Ráðuneytið telur einnig að þessi niðurstaða barnaverndaryfirvalda hafi verið innan ramma meðalhófsreglu stjórnsýslulaga, enda hefði lögmætu markmiði barnaverndarlaga ekki verið náð með öðru móti.