Fáir þáðu ókeypis súpu og brauð

Heldur dræm mæting var í ókeypis súpu og brauð hjá veitingastaðnum Nítjándu í gær. Veitingastaðurinn ætlar að bjóða fólki upp á ókeypis súpu og brauð alla mánudag í júlí í kjölfar sumarleyfa hjá hjálparsamtökum.

Næstu mánudaga ætlar veitingastaðurinn einnig að bjóða fólki að kaupa sér súpu, ef það vill borga fyrir hana, og verður sú upphæð sem fæst fyrir súpuna gefin Fjölskylduhjálpinni í lok sumars.

„Hér er mikill hugur í fólki og við höfum ákveðið núna að veita fólki einnig kost á að gefa framlög til Fjölskylduhjálparinnar. Það getur komið hingað og fengið sér ókeypis súpu eða keypt hana og við munum svo færa Fjölskylduhjálpinni þá upphæð sem fæst,“ segir Þórey Ólafsdóttir, rekstrarstjóri Nítjándu.

Hún segist ekki vita hvers vegna fáir hafi fengið sér súpu í dag. „Kannski erum við langt í burtu fyrir suma og fólki finnist erfitt að komast hingað, það er erfitt að segja. En við ætlum að halda ótrauð áfram næstu mánudaga, það er alveg ljóst.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert