Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, undrast ummæli Ögmudnar Jónassonar í sjónvarpsfréttum Rúv í kvöld. Þar kom fram að Ögmundur segði alveg skýrt að íslensk lög heimiluðu ekki að erlendir aðilar ættu í orkufyrirtækjum. Þetta kemur fram í tilkynningu til fjölmiðla frá Unni.
Í tilkynningunni segir meðal annars:
„Þetta er alrangt, aðilum á EES svæðinu er heimilt að fjárfesta í íslenskum orkuiðnaði skv. 2 tl. 4.gr. laga nr. 34/1991 sem hljóðar svo:
„Íslenskir ríkisborgarar og aðrir íslenskir aðilar mega einir eiga virkjunarréttindi vatnsfalla og jarðhita önnur en til heimilisnota. Sama á við um fyrirtæki sem stunda orkuvinnslu og orkudreifingu. Sama rétt hafa einstaklingar sem búsettir eru í öðru aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, öðru aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum og lögaðilar sem heimilisfastir eru í öðru aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, öðru aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum.“
Þar sem fréttamaður fjallaði ekki um þessa röngu staðhæfingu þingmannsins leyfi ég mér að benda á þetta og um leið að undrast yfir því að þingmaður fari með svo rangt mál.“