Vildi fá kröfuna slegna niður

Sveinn Andri Sveinsson.
Sveinn Andri Sveinsson. Árni Sæberg

Maður vopnaður sleggju mætti á skrifstofu Lögfræðistofu Reykjavíkur í dag og vildi fá fellda niður kröfu. „Þetta var sem betur fer allt leyst í mestu friðsemd,“ segir Sveinn Andri Sveinson, lögmaður og meðeigandi að stofunni

Engin sérstök hætta virtist stafa af manninum og virtist sleggjan helst vera til að veita orðum hans aukinn þunga.

Að sögn Sveins Andra var hringt á lögreglu og manninum fylgt út. „Sem betur fer lendum við ekki oft í svona atburðum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert