26 vilja verða bæjarstjórar í Ölfusi

Þorlákshöfn er stærsti bærinn í Ölfusi.
Þorlákshöfn er stærsti bærinn í Ölfusi. www.mats.is

Umsóknarfrestur um stöðu bæjarstjóra í Sveitarfélaginu Ölfusi er liðinn. Um stöðuna sóttu 29 einstaklingar en þrír þeirra hafa dregið umsóknir sínar til baka.  Meðal umsækjenda er Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, en hann sótti einnig um starf bæjarstjóra í Árborg. Þá sækja sjö aðrir núverandi og fyrrverandi bæjarstjórar um stöðuna.

Unnið verður úr umsóknum hið fyrsta og er stefnt að því að ljúka ráðningunni fyrir lok þessa mánaðar.

Umsækjendur um stöðuna eru:

Andrés Sigurvinsson, verkefnisstjóri
Árni Baldur Ólafsson, kerfisstjóri
Einar Mar Þórðarson, rekstrarstjóri
Grétar Mar Jónsson, fyrrverandi þingmaður
Guðmundur Hjörtur Þorgilsson, viðskiptafræðingur
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, bæjarstjóri
Guðrún Jóhannsdóttir, þjónustufulltrúi
Gunnar Ingi Birgisson, verkfræðingur
Hallgrímur Þ Gunnþórsson, félagsráðgjafi
Haukur Jóhannsson, öryrki
Jakob Jakobsson,    BA í lögfræði
Jón Baldvinsson, ráðgjafi
Kristinn Friðþjófur Ásgeirsson, markaðsstjóri
Nína Björg Sæmundsdóttir, viðskiptafræðingur
Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri
Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri
Ragnar Sær Ragnarsson, fyrrverandi sveitarstjóri
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri
Sigurður Sigurðsson, verkfræðingur
Stefán Haraldsson, atvinnuráðgjafi
Sveinn Pálsson, sveitarstjóri
Þorsteinn Fr. Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur MBA
Þorsteinn Guðnason, ráðgjafi
Þórarinn Egill Sveinsson, atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Þórir Kristinn Þórisson, bæjarstjóri
Örn Þórðarson, sveitarstjóri.





mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert