Guðrún formaður stjórnlaganefndar

Guðrún Pétursdóttir.
Guðrún Pétursdóttir. Þorkell Þorkelsson

Guðrún Pétursdóttir var kjörinn formaður stjórnlaganefndar á fyrsta fundi nefndarinnar þann 8. júlí síðastliðinn. Aðrir í nefndinni eru Aðalheiður Ámundadóttir, Ágúst Þór Árnason, Björg Thorarensen, Ellý Katrín Guðmundsdóttir, Njörður P. Njarðvík og Skúli Magnússon.

Stjórnlaganefnd er ætlað að undirbúa þjóðfund um stjórnarskrármálefni, vinna úr upplýsingum sem safnast á þjóðfundinum og afhenda stjórnlagaþingi þegar það kemur saman í febrúar á næsta ári.

Stjórnlaganefndin skal jafnframt annast söfnun og úrvinnslu fyrirliggjandi gagna og upplýsinga um stjórnarskrármálefni sem nýst geta stjórnlagaþingi og ennfremur leggja fram hugmyndir til stjórnlagaþings um breytingar á stjórnarskránni. Stjórnlaganefndin mun starfa náið með undirbúningsnefnd stjórnlagaþings.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert