Tvö börn á hjóli urðu fyrir bílum i Reykjavík nú síðdegis. Bæði börnin voru flutt með sjúkrabíl á slysadeild samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins.
Annað slysið varð á Breiðholtsbraut og olli nokkrum töfum á umferð en hitt varð á Reykjavíkurvegi.
Einnig féll barn af hjóli í Hlíðunum í Reykjavík og var það einnig flutt á slysadeild til aðhlynningar.
Ekki hafa fengist upplýsingar um alvarleika slysanna en samkvæmt sjúkraflutningamönnum hjá slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins mæta tilkynningar þar sem börn eiga í hlut miklum forgangi.