Landhelgisgæslan mun um helgina aðstoða lögregluna á Blönduósi við umferðareftirlit á þjóðvegum og hálendi umdæmisins. Fylgst verður úr lofti með ökuhraða og aksturslagi ökumanna og akstri vélknúinna farartækja um hálendið.
Í tilkynningu frá sýslumanninum á Blönduósi segir, að markmiðið sé að efla öryggi vegfarenda og vernda náttúru umdæmisins fyrir utanvegaakstri. Um er að ræða samstarfsverkefni embættanna í samráði við ríkislögreglustjóra.
Landhelgisgæslan mun einnig halda björgunaræfingu með björgunarsveitum Landsbjargar við höfnina á Blönduósi á laugardag kl. 16:15 og mun björgunarskipið Húnabjörg frá Skagaströnd og björgunarbátur frá Hvammstanga taka þátt í æfingunni.
Þyrlan mun einnig sinna öðrum verkefnum fyrir björgunarsveitir Landsbjargar.