Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóri skoðar hvort höfða eigi refsimál gegn stjórnendum fjármálafyrirtækja fyrir að bjóða upp á ólögleg myntkörfulán.
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, staðfesti þetta við Stöð 2. Í fréttum stöðvarinnar kom einnig, fram að verið sé að skoða hvort þessi mál eigi hugsanlega heima hjá sérstökum saksóknara og hvort brot séu fyrnd.