Lögreglan á Suðurnesjum stendur nú í umferðarátaki og er fylgst vel með umferð á Reykjanesbraut.
Í dag voru 15 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut.
Ökumenn eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og fara að settum reglum í umferðinni nú sem ávalt.