Björk Guðmundsdóttir og fleiri boða til blaðamannafundar á mánudag þar sem kynnt verður undirskriftasöfnun vegna áskorunar um orkuauðlindir Íslendinga.
Björk sendi ásamt fleirum umboðsmanni Alþingis formlega og ítarlega ábendingu um að taka sölu- og samningaferli í Magmamálinu til gagngerrar endurskoðunar og að gæta hagsmuna alls almennings.