Alls sóttu 40 um starf bæjarstjóra Akraness, sem auglýst var laust til umsóknar nýlega en þrír umsækjendur drógu umsóknina til baka. Meðal umsækjenda er Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og borgarstjóri Reykjavíkur.
Fyrirtækið Capacent Ráðningar hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd
Akraneskaupstaðar. Nú er unnið að því að meta umsóknir en að því loknu mun
bæjarráð Akraness fara yfir það úrtak umsókna sem Capacent mun leggja fram.
Stefnt er að því að gengið verði frá ráðningu bæjarstjóra á Akranesi í byrjun
ágúst nk.
Listi yfir umsækjendur var birtur á fundi bæjarráðs í gær. Hann lítur svona út:
Andrés Sigurvinsson, verkefnisstjóri Sveitarfélaginu Árborg
Árni Múli Jónasson, fiskistofustjóri
Árni Thoroddsen, kerfishönnuður
Björn Rúriksson, rekstrarráðgjöf
Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur
Elinborg Skúladóttir, rekstrarstjóri
Guðmundur Hjörtur Þorgilsson, viðskiptafræðingur
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, bæjarstjóri
Guðni Gunnarsson, B.Sc í sjávarútvegsfræði
Guðrún Jóhannsdóttir, þjónustufulltrúi
Hallgrímur Þ Gunnþórsson, félagsráðgjafi
Haraldur Ingólfsson, aðstoðarútibústjóri
Haukur Jóhannsson
Hólmfríður Sveinsdóttir, stjórnsýsluráðgjafi
Hulda Birna Baldursdóttir, kennari
Ingi Steinar Ellertsson, viðskiptafræðingur, M.Sc. fjármálum og stefnumótun
fyrirtækja
Jakob Jakobsson, BA lögfræði
Jóhannes Finnur Halldórsson, sérfræðingur í samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytinu
Kristinn Friðþjófur Ásgeirsson, markaðsstjóri
Kristján Kristjánsson, verkefnastjóri
Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir. skipulagsfulltrúi
Ómar Örn Kristófersson, byggingafræðingur
Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri
Sigurður Tómas Björgvinsson, framkvæmdastjóri
Sigurður Örn Sigurðsson, löggiltur fasteignasali
Stefán Haraldsson, atvinnuráðgjafi
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi þingmaður
Sturlaugur Sturlaugsson, viðskiptafræðingur
Sveinn Pálsson, sveitarstjóri
Vignir Björnsson, byggingafræðingur
Vilhjálmur Wiium, umdæmisstjóri
Þorsteinn Fr. Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur MBA
Þórarinn Egill Sveinsson, atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Örn Helgason, viðskiptafræðingur MBA
Örn Þórðarson, sveitarstjóri.