Haraldur Flosi Tryggvason, starfandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, sagði í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun, að líklega væru gjaldskrárhækkanir óhjákvæmilegar. Sagði hann að borgarbúum hefði verið hlíft við gjaldskrárhækkunum undanfarið og því ætti Orkuveitan dálítið inni.
Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands,
sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í gær að gjaldskrárhækkun væri eina
leiðin til að afstýra greiðsluþroti Orkuveitunnar sé miðað við óbreyttar
efnahagsaðstæður.