Ráðherra friðar Gljúfrastein

Gljúfrasteinn í Mosfellsdal.
Gljúfrasteinn í Mosfellsdal. mbl.is/Arnaldur

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða Gljúfrastein í Mosfellsbæ. Friðunin nær til ytra byrðis hússins. Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar aldar skeið.

Íslenska ríkið keypti húsið árið 2002, þegar öld var liðin frá fæðingu skáldsins, og tveimur árum síðar var það opnað almenningi.

Húsið er safn Halldórs Laxness þar sem heimili og vinnustaður hans eru látin haldast óbreytt. Stærstu vistarverurnar eru stór stofa á jarðhæð og skrifstofa Halldórs á annarri hæð. Þar er bókasafn hans varðveitt svo og vinnupúltið sem hann stóð gjarnan við.

Gljúfrasteinn var reistur árið 1945 og arkitekt hússins var Ágúst Pálsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert