Grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna

Lögreglustöðin á Akureyri.
Lögreglustöðin á Akureyri. mbl.is/GSH

Maður á þrítugsaldri var handtekinn af lögreglunni á Akureyri grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Að sögn varðstjóra hafði lögregla afskipti af manninum af annarri smávægilegri ástæðu. Lögregla áttaði sig svo fljótlega á að maðurinn var í annarlegu ástandi.

Að öðru leyti hefur verið rólegt hjá lögreglunni á Akureyri í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert