Lögreglumenn frá Selfossi stöðvuðu í síðustu viku kannabisræktun, sem stóð yfir í Hrunamannahreppi. Í húsinu voru tíu plöntur í góðum vexti. Ásamt plöntunum var lagt hald á ýmsan búnað tengdan ræktuninni.
Einn maður var kallaður til yfirheyrslu vegna málsins. Hann gekkst við ræktuninni og munu aðrir ekki tengjast henni, að sögn lögreglunnar.