Jón Ásgeir Jóhannesson heldur því fram í kyrrsetningarmáli sínu í Lundúnum að Kristín, systir hans, hafi skrifað nafn hans undir lánasamning án hans vitundar. Lánið er liður í Láni sem Glitnir veitti eignarhaldsfélaginu 101 Chalet en Kristín hafnar þessum sökum. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.
Slitastjórn Glitnist höfðaði kyrrsetningarmál gegn Jóni Ásgeiri en þar er nú reynt að leysa fléttu eignatengsla Jóns Ásgeirs og konu hans, Ingibjargar Pálmadóttur.