Drukkinn á snjósleða um mitt sumar

Seyðisfjörður.
Seyðisfjörður.

Lögreglan stöðvaði karlmann, sem ók á snjósleða um götur Seyðisfjarðar aðfaranótt sunnudagsins.  Fram kemur á vef Austurgluggans, að maðurinn er grunaður um ölvun við aksturinn og snjó er hvergi að sjá í bænum.

Einn annar var tekinn fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á Seyðisfirði. Helgin mun samt hafa verið fremur róleg.

Austurglugginn

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert