Hlutum stolið úr rakstrarvél

Hlutum úr rakstrarvél, sem stóð á túni við þjóðveg nr. 61 í Ísafirði innst í Ísafjarðardjúpi innan við bæinn Múla, var stolið um síðustu helgi. Að sögn lögreglu er um að ræða verðmæta hluti úr vélinni og sé þetta töluvert tjón.

Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir upplýsingum frá þeim sem kunna að hafa séð bíl eða til mannaferða við þessa rakstrarvél um nýliðna helgi að hafa samband í síma 450 3730.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert