Mikill reykur blasti við starfsfólki Fossvogskirkjugarðs í morgun þegar mætt var til vinnu en reykurinn kom frá líkbrennslu Fossvogskirkjugarðs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrir stuttu og vinnur nú við að reykræsa svæðið.
Ekki er vitað hvað olli reyknum að svo stöddu.