Á öðrum ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 16.200 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 8,7% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,4% hjá körlum og 8% hjá konum. Frá öðrum ársfjórðungi 2009 til annars ársfjórðungs 2010 fækkaði atvinnulausum um 500 manns en starfandi fjölgaði á sama tíma um 2000.
Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 21,3%. Hagstofan, sem tók þessar tölur saman, segir að atvinnuleysi sé alltaf mest á meðal þess aldurshóps en sé sérstaklega áberandi í öðrum ársfjórðungi. Þetta háa hlutfall í öðrum ársfjórðungi skýrist að mestu af aukinni atvinnuþátttöku námsmanna yfir sumarmánuðina.
Á fyrsta ársfjórðungi 2010 var atvinnuleysi 9,8% á höfuðborgarsvæðinu en 6,8% utan þess.
Af þeim sem voru atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi 2010 höfðu 2800 fengið vinnu sem hefst síðar, eða 17,4%. Til samanburðar höfðu 1500 manns fengið vinnu, eða 9,3%, á öðrum ársfjórðungi 2009. Á öðrum ársfjórðungi 2010 höfðu um 2700 manns verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur, eða 16,9% atvinnulausra, en voru á sama tímabili 2009 um 400 manns, eða 2,5%.
Fjöldi starfandi á öðrum ársfjórðungi 2010 var 169.500 manns
og fjölgaði um 2000 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 185.700
manns sem jafngildir 83,3% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 86,9% og
kvenna 79,5%.
Á öðrum ársfjórðungi 2009 voru alls 184.200 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist þá 81,9%. Atvinnuþátttaka karla var 86,3% og kvenna 77,2%.
Á öðrum ársfjórðungi 2010 var meðalfjöldi vinnustunda 40,2 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 44,3 klst. hjá körlum en 35,5 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 44,6 klst. en 24,6 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.
Á öðrum ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 40 klst., 43,9 klst. hjá körlum en 35,4 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 44,5 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 23,9 klst.