Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í austurborg Reykjavíkur í gær.
Við húsleit fundust tæplega 60 kannabisplöntur. Flestar plönturnar voru komnar á lokastig ræktunar og því tilbúnar til sölu og dreifingar, að sögn lögreglu.
Rúmlega tvítugur karlmaður var handtekinn á vettvangi og hefur hann viðurkennt aðild að málinu.