Treyst er á að lok efnahagslægðarinnar hamli fækkun lækna á Íslandi í tæka tíð áður en hún fer að hafa neikvæð áhrif á heilbrigðiskerfið að sögn Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra.
Ekki verði brugðist með sértækum hætti við fækkuninni. Hún nemur 10% frá 2008, að því er fram kemur í umfjöllun í Morgunblaðinu í dag.
Landlæknir og formaður Læknafélags Íslands hafa lýst áhyggjum af afleiðingum þróunarinnar.