Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði fyrir ríkisstjórnarfund nú síðdegis, að lagasetning í tilefni af Lýsingardómnum í morgun hefði ekki komið til tals og að hún teldi niðurstöðu héraðsdóms á margan hátt rökrétta.
Jóhanna sagði þetta í samtali við blaðamenn rétt áður en hún hvarf inn á fund ríkisstjórnar.
Gylfi Magnússon sagði að fundurinn væri ekki haldinn í beinu framhaldi af Lýsingardómnum heldur ætti að ræða myntkörfulánin í heild sinni.