Rekstrarleigusamningar innheimtir eins og áður

Lýsing hefur sent út greiðsluseðla með gjalddaga í júlí vegna rekstrar-, einka- og fjármögnunarleigusamninga. Mun Lýsing innheimta þessa samninga með sama hætti og gert hefur verið hingað til og er það í samræmi við lögfræðiálit, sem félagið hefur aflað sér, um að þessir samningar falli að öllum líkindum ekki undir dóm Hæstaréttar frá því í júní.

Lýsing tekur fram, að viðskiptavinir tapi að sjálfsögðu ekki betri rétti, verði sýnt fram á slíkt síðar.

Dómar Hæstaréttar snérust um svonefnda bílasamninga en samkvæmt þeim eignast viðskiptavinurinn bílinn eftir að hafa greitt af samningnum í umsaminn tíma. Sagði Hæstiréttur að skilgreina yrði þessa samninga sem lán en ekki leigu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert