„Ég átti alltaf von á að þetta yrði niðurstaðan", sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í samtali við fréttamenn áður en hann hélt inn á ríkisstjórnarfund sem var að hefjast í fjármálaráðuneytinu.
Steingrímur gaf ekkert uppi um hugsanlega lagasetningu vegna dómanna en kvaðst telja niðurstöðuna í dag „sanngjarna“.
Steingrímur sagðist vilja að málið hefði sinn gang fyrir dómstólum, en eins og kunnugt er hefur Lýsingardómnum verið áfrýjað til Hæstaréttar.