Þung umferð er nú í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi. Einn hefur verið tekinn fyrir of hraðan akstur síðan klukkan fimm í dag. Kemur það lögreglu ekki á óvart í ljósi þess að nú er bíll við bíl á þjóðveginum. Umferðin hefur verið þung frá því upp úr hádeginu.
Lögreglan í Borgarnesi segir að þótt greinilega séu fleiri á leið til höfuðborgarsvæðisins sé umferðin norður einnig talsverð.
Í umdæmi lögreglunnar á Selfossi hefur verið talsverð umferð til höfuðborgarsvæðisins, umferð sem dregið hefur úr seinnipartinn.
Lögreglan á Selfossi segir fáa ökumenn hafa verið tekna fyrir of hraðan akstur um helgina sem hafi að mestu verið tíðindalítil.