Engir fundir eru fyrirhugaðir í kjaradeilu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna að sögn Sverris Björns Björnssonar, formanns Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Hann segir að ekkert hafi heyrst frá viðsemjendum þeirra og að óvíst sé að þeir láti heyra í sér fyrr en eftir helgi. „Ég vona bara að þetta klárist sem fyrst,“ segir Sverrir í samtali við mbl.is.