Tveir bátar sukku í Reykjavíkurhöfn

Báturinn sökk í Reykjavíkurhöfn.
Báturinn sökk í Reykjavíkurhöfn. mbl.is/Sigurður Bogi

Tveir bátar sukku í Reykjavíkurhöfn um helgina, annar í smábátahöfninni skammt frá tónlistarhúsinu, en hinn stutt frá Kaffivagninum. Þeim verður náð upp í dag.

Að sögn hafnarvarðar eru þetta trébátar sem ekki hafa verið notaðir um talsverðan tíma. Þeir eru ekki með haffærisskírteini. Annar báturinn er um 60 tonn en hinn 25-30 tonn.

Búið var að fjarlægja olíu úr bátunum og því ekki talið að nein mengun hafi orðið. Varnargirðing var þó sett í kringum bátinn sem sökk við Kaffivagninn til öryggis.

Talið er að sjór hafi seytlað inn í bátana þar sem þeim hefur ekkert verið sinnt í langan tíma og þeir á endanum sokkið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert