Nóg er um að vera um helgina en verslunarmannahelgin er ein vinsælasta ferðahelgi ársins. Búist er við tugþúsundir leggi leið sína út á landsbyggðina frá höfuðstaðnum en Vestmannaeyjar eru taldar verða vinsælasti áfangastaðurinn.
Lögreglan í Vestmannaeyjum er með mikinn viðbúnað og hefur fengið liðsstyrk frá öðrum lögregluliðum.
Mikill umferðarþungi var um Suðurlandsveg í gær og náði hámarki einum og hálfum tíma fyrir brottför Herjólfs úr Landeyjahöfn.